Ég vil minna á að stjórn FÍF ákvað að bjóða félagsmönnum sínum upp á passamyndatöku þeim að kostnaðarlausu hjá Ásmynd, Hraunbæ 119 Reykjavík. Bent er á að starfsmenn hringi á undan sér og bóki tíma svo allt megi ganga snurðulaust fyrir sig en síminn er 586-8001. Teknar verða nokkrar stafrænar myndir og svo valdar tvær bestu. Hver félagsmaður fær 4 passamyndir til eigin nota en FÍF fær afrit til þess að setja inn á heimasíðuna þar sem þær flestar eru vel komnar til ára sinna.
Kv.
SO
Kv.
SO