FÍF er aðili að BSRB og einnig að styrktarsjóði BSRB sem allir flugumferðarstjórar greiða þannig í. Þeir flokkar sem sjóðurinn styrkir eru:
- Sjúkraþjálfun, nudd, nálastungumeðferðir og hnykklækningar
- Krabbameinsleit
- Hjartavernd
- Ferðakostnaður
- Líkamsrækt
- Ættleiðingar
- Tæknifrjóvgun
- Gleraugnakaup og sjónlagsaðgerðir
- Heilsustofnunin í Hveragerði
- Sálfræði og félagsráðgjöf
- Útfarir
- Tannlæknakostnaður
- Heyrnatæki
- Fæðingarstyrkir
Auk þess greiðir sjóðurinn dagpeninga til sjóðsfélaga vegna veikinda í allt að 90 daga eftir að greiðslum atvinnurekenda lýkur.
Félagar í FÍF eru hvattir til þess að kynna sér þá styrki sem eru í boði hjá styrktarsjóð BSRB á vefsíðunni styrktarsjodur.bsrb.is.