Reykjavík 29. Desember 2006.
Hr. Flugmálastjóri
Þorgeir Pálsson
Reykjavíkurflugvelli.
Öryggisnefnd FÍF hefur áhyggjur af stöðu flugöryggismála frá og með miðnætti þess 31. desember næstkomandi við aðilaskipti á flugstjórnarþjónustu á Íslandi. Af því tilefni óskar nefndin eftir upplýsingum um eftirtalin atriði:
- Hefur verið gerð öryggisúttekt (Safety Assessment report) á viðbragðsáætlun Flugmálastjórnar bæði innanlands og í úthafsflugstjórnarsvæðinu? Sé svo óskar nefndin eftir því að fá eintak til aflestrar.
- Eru fyrirhugaðar breytingar á loftrými og/eða flokkun þess?
- Hvernig verður kennslu og starfsþjálfun vegna þessa háttað?
- Með hvaða hætti verður tryggt að aðilar sem hugsanlega sinna flugumferðarstjórn og/eða flugupplýsingaþjónustu uppfylli fyllilega kröfur þar um samkvæmt núgildandi reglum Flugmálastjórnar Íslands?
Virðingarfyllst,
Öryggisnefnd FÍF
Óskar Óskarsson Öne/00206
Einar Hilmarsson Afrit sent:
Kjartan Halldórsson FÍF,
Hilmar Magnússon FÍA.